Eftirfarandi er viðtal við Birnu í Morgunblaðinu þriðjudaginn 3. janúar, 2006:
Birna Ásbjörnsdóttir er lærður hómópati frá College of Practical Homeopathy í London og hefur starfað þar sem hómópati. Birna er einnig lærður næringarráðgjafi frá College of Natural Nutrition, London, og ráðgjafi eða Biographical Counsellor frá The Biography and Social Development Trust, Englandi. Hún hefur einnig lært svæðanudd og ristilhreinsun og var beðin um að útskýra mikilvægi ristilsins fyrir heilsu og vellíðan.
Hlutverk ristilsins er mikilvægt eins og
flestir vita, en hversu mikilvægu hlutverki
hann gegnir þegar kemur að heilbrigði
einstaklingsins vita færri. Heilbrigður og
vel starfandi ristill gegnir þar
lykilhlutverki. Ristillinn er síðasti hluti
meltingarfæranna. Hann er um einn og hálfur
metri á lengd en yfirborð ristils og
smáþarma er um 200 fermetrar eða 150 sinnum
yfirborð húðarinnar! Þekktasta hlutverk
ristilsins er að frásoga næringarefni og
vatn, framleiðsla ákveðinna vítamína og að
þjappa saman ýmsum efnum og úrgangi sem við
losum okkur svo við í formi hægða. En það
sem færri vita er að í ristlinum er stór
hluti ónæmiskerfis okkar. Þar spilar
bakteríurflóran mikilvægt hlutverk, þ.e. sú
flóra sem á að vera í ristlinum og viðheldur
heilbrigði hans. Ef þessi bakteríuflóra er
ekki í jafnvægi er hætta á allskonar
ójafnvægi í starfssemi líkamans. Sem dæmi má
nefna að meiri hætta er á alls kyns
sýkingum, ss. candida, salmonella eða e.
colii, kólesterólójafnvægi í æðakerfi
líkamans, fitusýruójafnvægi eða skorti,
vöntun eða skorti á K-vítamíni, B12-, B1- og
B2-vítamínum, sem hafa með orkuframleiðslu
að gera, og fleira mætti telja. Það sem
hefur áhrif á heilbrigði flóru ristilsins er
fyrst og fremst mataræðið. Það getum við
byggt upp og viðhaldið góðri flóru og þar
með heilbrigði ristils og almennri heilsu,
eða við getum komið ójafnvægi á með óhollu
mataræði og þá veikjum við ónæmiskerfi
líkamans og varnir. Einnig hefur öll streita
áhrif á ristilinn, sem og lyf. Þá eru
sýklalyf verst en einnig ýmis önnur lyf,
s.s. gigtarlyf.

