Regndropameðferð
Regndropameðferð er sérstök olíusmuring með hágæða lífrænum
kjarnaolíum. Meðferðin var þróuð af Gary Young náttúrulækni í
samræmi við gömul vísindi indjána um orkukerfi líkamans.
Regndropameðferðin er fyrir alla. Sérlega góð við hverskyns
óþægindi í baki sem og vörn gegn flensu og kvefi því kröftugar
olíurnar ráðast gegn óvinveittum örverum.
• Örvar blóðflæði
• Eykur andoxun líkamans
• Losar um bólgur og sársauka
• Losar spennu í baki, slakandi
• Veitir vörn gegn óvinveittum örverum - flensuvörn
• Örvar hreinsun úr vefjum og líffærum
• Jafnar orku og eykur hugrekki og þor
• Losar um gamla orku og tilfinningar
Regndropameðferðin er öflugt meðferðarferli sem sameinar vísindi
ilmolíufræða, nudd og orkujöfnun til að auka heilbrigði og
lífskrafta. Níu kraftmiklar hágæðakjarnaolíur eru látnar drjúpa eins
og ,,regndropar" á hryggsvæðið. Eftir að búið er að setja allar
olíur á hrygginn og nudda þær inn er heitur bakstur lagður á bakið,
þetta er róandi og eykur upptöku olíanna. Að viðbættum mjúkum
teygjum framkallar þessi meðferð djúpa slökum, endunýjun, hreinsun
og jafnar orku allra líkamskerfanna.
• Valor - vinnur með líkamlegt og tilfinningalegt jafnvægi. Er
sögð geta hjálpað líkamanum að rétta sig af. Eykur sjálfstraust og
sjálfsöryggi. Lykill að notkun þessarar olíu er þolinmæði þegar
tíðni hennar byrjar að jafn orkuna getur líkamlegur bati hafist.
• Oregano - dregur úr óþægindum, sterk vörn gegn vírusum og
bakteríum. Hreinsandi og bólgueyðandi. Rannsóknir hafa sýnt hana
hafa 99% vörn gegn Streptococcus Pneumoniae,.
• Thyme - ein öflugasta olían gegn vírusum og bakteríum, inniheldur
Thymol sem hefur gagnast mjög vel gegn tannholdsbólgum og vandamálum
í munni. Hjálpar til við bata og dregur úr þreytu eftir veikindi.
Hefur sterkan andoxunarkraft.
• Basil - vinnur gegn spennu, slakar á vöðvum, bólgu og er vírus
vörn. Góð á skordýrabit. Góð við þreytu hugans og getur skerpt
lyktarskyn.
• Cypress - örvar flæði og blóðrás, dregur úr bólgu og spennu og
lagar slitna vefi.
• Wintergreen/Birch bólgueyðandi (líkt og cortisone) og linar
sársauka og vöðvabólgu, góð fyrir bein, vöðva og liði.
• Marjoram - mýkir og slakar á vöðvum, róandi og hreinsandi.
• Peppermint - deyfir sársauka, bakteríubani, örvar flæði, kælir
slitna vöðva. Eykur virkni annarra olía
• Aroma Siez - fer vel inní vöðva, slakar og mýkir, góð á sársauka.
• Ortho Ease Oil - eykur flæði, mýkir vöðva, dregur úr spennu og
streitu.
(Ath - regndropameðferð getur verið ertandi fyrir þá sem hafa
viðkvæma húð og álag í líkamanum)
Young Living Oils eru unnar úr lífrænt ræktuðum hráefnum og unnar
án aukaefna og á þann hátt að hámarks læknandi áhrif kjarnaolíunnar
náist fram.