heim       meðferðaraðilar       meðferðir       iðkun       tenglar       rósin      
Höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð 
Líf fólks hefur gjörbreyst á síðustu árum með nútímavæðingu þjóðfélagsins, vinnuumhverfið er allt annað, líkamleg störf eru einhæf, áreitið er meira, lífshættir hraðari, mataræði hefur breyst og gerðar eru hærri kröfur. Afleiðing þessara breytinga er aukin streita en streita getur orsakað sjúkdóma.

Ef líkamleg, sálræn eða tilfinningaleg líðan fólks er slæm um langan tíma þá endar það með því að hin neikvæðu mynstur festast sem vefræn spenna í líkamanum.

Þó líkaminn búi yfir meðfæddum aðferðum sem gera honum kleift að lækna sjálfan sig og laga það sem aflaga fer þá tekst þessi meðfædda lagfæring ekki alltaf fullkomlega. Höfuðbeina- og spjaldhryggðmeðferðin örvar eðlislæga sjálfslækningakrafta líkamans.
Með tækni og skynjun sinni leitast meðferðaraðilinn við að finna þau svæði líkamans þar sem hömlur, þrýstingur eða spenna eru til staðar. Þessir þættir hindra eðlilegt flæði í kerfinu og hafa áhrif á starfsemi líffæra, vöðva, tauga, æða og líkamsvefja.

 Meðferðaraðilinn finnur upphaf þeirrar hreyfingar sem er brengluð, fylgir eftir og vindur ofan af og kemur á frjálsri, óhindraðri og samhæfðari hreyfingu í kerfinu. Með því að ná djúpstæðum losunum í vefjunum gerir það manneskjunni kleift að ná aftur betra jafnvægi og meiri hreyfanleika þar sem orkuflæðið, vökvaflæðið, blóðflæðið og vefjastarfssemin getur starfað betur og á samstilltari hátt.

 

Fyrir áhugasama er hér ritgerð um Lífsorkuna